Algengar spurningar

ÍSLE3BÓ05 – Lestur góðra bóka (í boði fyrir alla)

Lýsing áfanga:

Áfanginn er ætlaður nemendum sem hafa áhuga á að lesa góðar bókmenntir. Nemendur velja bækurnar af lista sem ætlaður er áfanganum og er hvort tveggja um að ræða íslenskar skáldsögur og þýddar. Nemendur geta valið um skáldsögur, glæpasögur, ævisögur, ferðasögur, fræðibækur og ýmislegt fleira. 

Ekki er um neina formlega kennslu að ræða heldur velur nemandinn sér sex bækur til lestrar yfir önnina. Hann gerir grein fyrir hverri bók hjá umsjónarkennara áfangans eftir nánara samkomulagi. Gert er ráð fyrir jafnri vinnu yfir önnina og skal nemandi hafa samráð við kennara þegar hann velur bækurnar. Heildarblaðsíðufjöldi bókanna sex má ekki vera undir 1.000 blaðsíðum.  

Námsmat:

Námsmat í áfanganum er S (staðið) og F(fall). Ætlast er til að allar bækurnar sex séu lesnar til að standast áfangann.