Algengar spurningar

ÍSLE3HL05 – Halldór Kiljan Laxness (í boði fyrir alla)

Lýsing á áfanga:

Fjallað verður um ævi og störf Halldórs Laxness. Lesin verða brot úr verkum hans, horft á heimildarmyndir og kvikmyndir byggðar á verkum og ævi Halldórs. Gestafyrirlesarar koma og ræða um skáldið og staðir heimsóttir er tengjast ævi þess. Nemendur velja sér eitt verk eftir Halldór af bókalista, lesa það sjálfstætt á tilteknum tíma og gera kennara grein fyrir efni þeirra á þann hátt sem nemanda hentar best.

Námsmat:

Nemendur skila alls þremur verkefnum yfir önnina og ákveða sjálfir hvers eðlis þau verkefni eru. Ekkert lokapróf er í áfanganum.