Algengar spurningar

Kennari

Starf kennara er margbreytilegt og flókið. Það gerir ríka kröfu til fagvitundar sem erfitt er að gera tæmandi skil. Eftirfarandi þættir eru á ábyrgð kennara og lýsa starfi hans:

  • Að annast kennslu, undirbúning kennslu, námsmat og taka þátt í faglegu samstarfi samkvæmt markmiðum skóla- og aðalnámskrá.
  • Að gera námsáætlanir í samstarfi við fagstjóra og aðra samkennara.
  • Að semja og leggja fyrir próf og verkefni í samstarfi við fagstjóra og samkennara.
  • Að fylgjast með árangri nemenda sinna og veita þeim endurgjöf.
  • Að veita almenna upplýsingagjöf og upplýsingagjöf vegna sjálfsmats skóla og skólanámskrár.
  • Að annast viðveruskráningu nemendahópa sinna.
  • Að taka þátt í þróun náms og kennslu í skólanum.
  • Að eiga samskipti við forráðamenn ólögráða nemenda eftir því sem við á.
  • Að hafa viðtalstíma fyrir nemendur sína og forráðamenn.
  • Að vinna með og veita námsráðgjöfum upplýsingar um nemendur sína.
  • Að sitja starfsmannafundi sem boðaðir eru.
  • Að viðhalda faglegri hæfni sinni.
  • Að kynna sér og hafa í heiðri siðareglur kennara.