Algengar spurningar

Kynbundið ofbeldi, kynbundin og kynferðisleg áreitni

Allir starfsmenn eiga rétt á að komið sé fram við þá af virðingu.  Í 14. gr. laga nr. 150/2020 er sú skylda lögð á skólastjórnendur að þeir grípi til sérstakra aðgerða til að koma í veg fyrir að starfsfólk og nemendur skólans verði hvorki fyrir kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni eða kynferðislegri áreitni.

  • Kynbundið ofbeldi: Ofbeldi á grundvelli kyns sem leiðir til eða gæti leitt til líkamlegs, kynferðislegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir því verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis, bæði í einkalífi og á opinberum vettvangi.
  • Kynbundin áreitni: Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi.
  • Kynferðisleg áreitni: Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/eða líkamleg.

Telji starfsfólk sig verða fyrir ofangreindri áreitni og/eða hatursorðræðu má t.d. leita til trúnaðarmanna eða jafnréttisfulltrúa.  Einnig er tilkynningargátt á heimasíðu skólans fyrir starfsmenn og nemendur.

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi
Kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni ásamt hatursorðræðu eru ekki liðin í skólanum. Því eru fyrirbyggjandi aðgerðir og fyrir fram ákveðin viðbrögð nauðsynleg. Fræðsla um einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni fyrir starfsfólk. Skólastjórn/viðbragðsteymi. Kynning í september ár hvert.