Algengar spurningar

Laus störf, starfsþjálfun, endurmenntun og símenntun

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi
Allir skulu hafa jafna möguleika á starfi við skólann. Við ráðningu skal litið fyrst til hæfni umsækjanda en leitast við að viðhalda jöfnum kynjahlutföllum í skólanum og innan deilda. Skólastjórn og fagstjórar. Athugað alltaf þegar nýr starfsmaður er ráðinn til starfa.
Gæta skal þess að yfirvinna standi öllum jafnt til boða og óháð kyni og aldri. Þegar kemur að skiptingu tíma innan deildar skal gæta jafnræðis. Skólastjórn og fagstjórar. Athugað við stundatöflugerð hverrar annar.
Endur- og símenntun skal vera opin öllum óháð kyni og aldri. Við úrvinnslu umsókna skal fyrst og fremst líta til þess hvað nýtist stofnuninni sem best. Kyngreind samantekt með upplýsingum um þátttöku í endurmenntun. Skólastjórn og gæðateymi. Verið lokið í maí ár hvert.
Leitast skal við að jafna kynjahlutföll í þeim deildum þar sem hallar á annað kynið. Litið skal til kynjahlutfalla í deildum og starfshópum þegar ráðið er til starfa. Skólastjórn og fagstjórar. Athugað í hvert sinn sem starf er auglýst.
Að námstilboð skólans mismuni ekki eftir kyni. Fylgjast með kynjahlutfalli á námskeiðum á vegum skólans og hvetja starfsmenn af því kyni sem á hallar að sækja sér starfsþjálfun og endurmenntun. Skólastjórn. Jafnréttisfulltrúi með stuðningi viðbragðsteymis.