Algengar spurningar

LÍFF3EF05 – Erfðafræði (í boði fyrir náttúrufræðibraut)

Lýsing áfanga:

Í þessum áfanga er fjallað um lykilhugtök erfðafræðinnar, fósturfræði og þróunarfræði. Litningar eru teknir til umfjöllunar, breytingar og gallar á þeim, prótínmyndun, erfðamynstur lífvera og tíðni og jafnvægi gena í ólíkum stofnum lífvera rætt og líkur fundnar út. Einnig er fjallað um helstu aðferðir í erfðarannsóknum og erfðatækni og verklegar æfingar gerðar samhliða því. Áfanginn er byggður upp á fyrirlestrum, einstaklings- og hópavinnu og verklegum æfingum.  

Efni áfangans er til inntökuprófs í læknisfræði og sjúkraþjálfun við HÍ. 

Námsmat:

Hlutapróf, verkefnavinna og skýrslugerð.