Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Áfanginn er tvískiptur. Nemendur læra undirstöðuatriðin í hvernig á að undirbúa sig fyrir prufur í leiklistarnám á háskólastigi með því að æfa flutning á einræðu og/eða sönglagi.
Í einræðu-hluta áfangans er farið yfir hvernig hægt er að undirbúa sig fyrir prufur í leiklistar- og/eða söngnám og jafnvel fyrir leikhús. Farið verður yfir það hvernig við veljum okkur einræður og hvernig við vinnum þær. Einnig er hægt að velja að vinna að söngleikjalagi. Stefnt er að því að hver nemandi nái að vinna amk eina einræðu og/eða sönglag yfir önnina.
Í sketsa-hluta áfangans læra nemendur undirstöðu atriði í að skrifa grín sketsa. Farið verður yfir undirstöðuhugtök úr grín fræðum eins og „game”, „crazy/straight” og mismunandi tegundir sketsa. Í áfanganum munu nemendur skrifa sketsa í hverri viku og fara kennslustundir í samlestur og greiningu á sketsum sem eru skrifaðir af nemendum ásamt sketsum sem horft verður á. Aðferðafræðina má einnig nýta í skrif á uppistandi. Nemendur munu bæði vinna í hópum og sjálfstætt.
Símat yfir önnina, metið er eftir þátttöku í umræðum og samvinnu í tímum. Einkunnagjöf byggist á framkomu, raddbeitingu, frumleiki/frumkvæði, samstarfshæfni og hlustun.