Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Í áfanganum er unnið með mismunandi aðferðir sjónlista t.d. olíumálun, módelteikningu, módel í leir, línuteikning færð yfir í laserskera og fleira. Nemendur læra að nota mismunandi verkfæri til listsköpunar. Samtímalist verður skoðuð og nýtt sem innblástur.
Markmið áfangans er að kynna fyrir nemendum hversu fjölbreyttar aðferðir er hægt að nota til listsköpunar og hvernig það getur gefir aðra sýn á umhverfið.
Engar forkröfur er í áfangann, sem þýðir að allir eru velkomnir sem hafa áhuga, það þarf ekki að hafa lært eitthvað í sjónlistum áður.
Áfanginn er verklegur símatsáfangi þar sem nemendur vinna bæði stór og smá verkefni og er áhugi, vinnuframlag og afurð það sem stuðst er við í mati verkefna.