Algengar spurningar

LÖGF3RS05 – Lögfræði (í boði fyrir náttúrufræðibr. og nýsköpunar- og listabraut)

Lýsing áfanga:

Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur fái innsýn í réttarreglurnar og geri sér grein fyrir hvernig þær verka á samskipti manna. Umfjöllunarefnið er mannréttindi, störf löggjafans og framkvæmdarvaldshafa. Einnig er vikið sérstaklega að refsirétti og ýmsar tegundir afbrota teknar til skoðunar. Þjóðaréttur er verður sömuleiðis til umfjöllunar sem og helstu réttarreglur um verslun og viðskipti og þær reglur sem gilda um hjúskap, óvígða sambúð, börn og erfðir. 

Lögð er rík áhersla á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð og að nemendur öðlist færni í meðferð heimilda, þannig að þeir geti beitt tilteknum hugtökum varðandi lausnir á lögfræðilegum álitaefnum og rökstutt mál sitt í tengslum við það.  

Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur öðlist skilning á helstu réttarreglum sem geta gagnast þeim í frekara námi og fjölbreytilegum störfum á vettvangi íslensks athafna- og fjármálalífs, svo og í mikilvægu hlutverki sínu sem góðir þjóðfélagsþegnar. 

Námsmat:

Símat. Kennslan byggist hvort tveggja á fyrirlestrum og verkefnavinnu. Nemendur leysa umfangsmikið sakamál, sem þarf að undirbúa rækilega og flytja fyrir dómi þar sem þeir bregða sér í hlutverk dómara, verjenda, sakborninga, lögreglu og vitna.