Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
1.1. Sýnd er háttvísi og prúðmennska í skólanum og alls staðar þar sem komið er fram í nafni hans. 1.2. Nemendur (ritstjórar, ritnefndir, greinahöfundar og aðrir hliðstæðir aðilar sem koma að gerð og birtingu efnis innan skólans) bera ábyrgð á útgáfustarfsemi sem þeir standa fyrir. Við alla fjölmiðlun, t.d. útvarpsstarfsemi og miðlun myndefnis, sem og á vefsíðum og samfélagsmiðlum nefnda Nemendafélagsins er gætt velsæmis og almennrar háttvísi í gerð og framsetningu efnis og allri umfjöllun. 1.3. Nemendum er óheimilt að gefa út efni í nafni skólans sem ekki hefur verið borið undir félagslífsfulltrúa skólans. 1.4. Óviðeigandi eða ærumeiðandi orðalag í útgáfu nemenda, í hvers kyns fjölmiðlun þeirra, sem og á vefsíðum og samfélagsmiðlum í nafni nefnda nemendafélagsins getur varðað brottrekstri úr skóla. 1.5. Almennt gildir sú regla að foreldrum eða forráðamönnum nemenda skal gert viðvart svo þeir geti nýtt sér andmælarétt sinn ef um brottvísun er að ræða. Þó getur til þess komið að vísa þurfi nemanda úr skóla fyrirvaralaust.