Algengar spurningar

Nánari útskýringar – Ábyrgð

2.1. Í kennslustundum eru nemendur vakandi, þeir virða verkstjórn kennara og gæta þess að valda ekki ónæði.
2.2. Kennara er heimilt að vísa nemanda úr kennslustund að gefnu tilefni, t.d. fyrir að spilla vinnufriði og fyrir að vera óvirkur í kennslustund. Síendurtekin brot eru tilkynnt skólastjórn.
2.3. Nemendur ganga snyrtilega um skólann og lóð hans og stuðla að því að kennslustofur og aðrar vistarverur séu ávallt snyrtilegar. Enginn má skilja eftir sig rusl, hvorki innan dyra né utan og skal allt rusl flokkað á viðeigandi hátt.
2.4. Almennt er bannað að neyta matar á meðan kennsla fer fram. Ef kennari gefur leyfi og frágangur er snyrtilegur má víkja frá banni.
2.5. Nemendur sem  vinna tjón á eigum skólans þurfa að bæta fyrir skemmdir sem þeir hafa valdið.
2.6. Lánþegar bera ábyrgð á því sem þeir fá lánað út á nafn sitt á bókasafni skólans og þurfa að vera reiðubúnir að greiða gjald fyrir vanskil eða skemmdir á gögnum bókasafns.
2.7. Í tölvustofum, sérgreinastofum og á bókasafni gilda umgengnisreglur sem birtar eru þar.
2.8. Nemendum er heimilt að hafa snjalltæki meðferðis í skólann og tengjast skólanetinu. Tækin skulu geymd afsíðis í kennslustundum, t.d. í símaboxi eða ofan í tösku með slökkt á hljóði.
2.9. Kennari ber ábyrgð á verklagi í sínum kennslustundum og hefur því fullt umboð skólans til að leyfa eða banna notkun tölvu og annarra snjalltækja.
2.10. Kennslustofur eru ekki opinber svæði. Upptaka og myndataka á einstaklingi án leyfis viðkomandi í kennslustofunni brýtur gegn opinberum reglum um persónuvernd. Slík notkun snjalltækja er því óheimil með öllu og telst alvarlegt agabrot.
2.11. Brjóti nemandi reglur skólans um notkun snjalltækja bregst skólinn við eins og um agabrot sé að ræða. Ítrekuð brot geta haft íþyngjandi afleiðingar fyrir viðkomandi nemanda.
2.12. Nemendur bera ábyrgð á hegðun sinni í ferðum á vegum skólans. Við brot á skólareglum verður nemandi sendur heim á eigin kostnað.
2.13. Nemendur sem framfylgja ekki reglum kennara í námsferðum fá skriflega áminningu og fá ekki að fara í fleiri ferðir á vegum skólans á sinni skólagöngu.