Algengar spurningar

Nánari útskýringar – Brot á skólareglum og meðferð ágreiningsmála

8.1. Rísi alvarlegur ágreiningur milli nemenda, kennara og/eða annarra starfsmanna skólans og takist hlutaðeigandi ekki að finna lausn á málinu má vísa því til skólastjóra. Uni málsaðilar ekki niðurstöðu skólastjóra má vísa málinu til skólanefndar.
8.2. Brjóti nemandi skólareglur er honum veitt skrifleg viðvörun áður en til áminningar kemur nema brotið sé þess eðlis að því verði ekki við komið, svo sem brot á almennum hegningarlögum. Fái nemandi áminningu skal hún vera skrifleg þar sem fram kemur tilefni áminningar og þau viðbrögð sem fylgja í kjölfarið brjóti nemandi aftur af sér. Nemandanum skal gefinn kostur á að andmæla áminningu. Áminningar eru skriflegar í INNU.
8.3. Brjóti ólögráða nemandi reglur skólans eru foreldrar/forráðamenn upplýstir um það. Við meðferð mála skal sérstaklega gæta ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, laga nr. 121/1989 um skráningu og meðferð persónuupplýsinga og upplýsingalaga nr. 50/1996.
8.4. Í samráði við skólastjórn ákveður skólastjóri hvaða viðurlögum skuli beitt vegna alvarlegra brota á skólareglum.
8.5. Viðurlög við broti á skólareglum geta verið eftirfarandi, eftir því hve skólayfirvöld telja brotið alvarlegt:  áminning skólastjóra, brottrekstur, tímabundinn eða endanlegur.