Algengar spurningar

Nánari útskýringar – Hæfni

4.1. Til þess að standast áfanga þurfa nemendur að ná lokaeinkunn 5,0 eða hærra. Lokaeinkunn í áfanga byggist ýmist á lokaprófi ásamt vinnueinkunn í áfanganum eða símati sem er án lokaprófs. Vægi hvers matsþáttar er breytilegt milli einstakra áfanga og er vægið tilgreint í námsáætlun. Í námsáætlun kemur einnig fram ef nemendur þurfa að ná lágmarkseinkunn á lokaprófi til þess að vinnueinkunn gildi. Þar kemur líka fram hvernig endurtekt í áfanganum fer fram. Lokapróf eru haldin í lok annar, þ.e. í desember og í maí. Þá eru lokapróf sumarannar fjarnáms haldin í ágúst.
4.2. Nemendum gefast þrjú tækifæri til að ljúka áfanga: standast lokanámsmat á önn, ná endurtektarprófi eða ljúka áfanga í fjarnámi  á næstu önn á eftir. Nemandi sem nær ekki viðmiðum í lokanámsmati annar á rétt á að taka endurtektarpróf. Ef nemandi annað hvort fellur á endurtektarprófi eða kýs að taka það ekki þarf hann að endurtaka áfangann í fjarnámi Verzlunarskólans. Endurtektarpróf sem eiga við um áfanga á haustönn eru haldin í janúar en þau sem eiga við um áfanga á vorönn eru haldin í júní.  Þeir sem hefja fjarnám á vorönn taka fjarnámspróf í maí en þeir sem hefja slíkt nám á sumarönn taka próf í ágúst. Engin endurtektarpróf eru haldin vegna áfanga í fjarnámi. Nemendur sem endurtaka áfanga í fjarnámi verða sjálfir að skrá sig í áfangann á heimasíðu skólans. Þegar um símatsáfanga er að ræða geta aðrar reglur gilt og er þeirra þá getið í námsáætlun viðkomandi áfanga. Greiða þarf fyrir endurtektarpróf og fjarnámsáfanga.
4.3. Nemandi má að hámarki endurtaka þrjá áfanga á önn. Ef nemandi er með fall í fleiri áföngum en þremur á önn, þarf hann að hafa lokið öllum áföngum í endurtektarprófum annarinnar eða fjarnámi á næstu önn (vorönn eða sumarönn) til að geta flust á milli ára. Nemandi sem fellur um bekk getur sótt til skólastjóra um að fá að setjast aftur í sama bekk. Nemandinn á þá rétt á að fá metna þá áfanga þar sem einkunn er 7,0 eða hærri. Þetta á þó ekki við um íþróttir.
4.4. Nemandi getur útskrifast sem stúdent með lægri einkunn en 5,0 í einum eða tveimur áföngum, en þó má einkunn í þeim ekki vera lægri en 2,0. Þetta gildir bara um lokaáfanga eða staka áfanga og fær nemandinn ekki einingar fyrir viðkomandi áfanga. Einingafjöldinn til stúdentsprófs má þó aldrei verða minni en sá fjöldi sem tiltekinn er á viðkomandi námsbraut.
4.5. Skólanum ber ekki skylda til að halda endurtektarpróf nema fyrir þá sem eru að ljúka stúdentsprófi  frá skólanum.
4.6. Nemandi sem ekki mætir í lokapróf eða sjúkrapróf, telst ekki hafa lokið skólaárinu og verður tekinn út af nemendaskrá skólans.
4.7. Ákveðnir áfangar telja til verslunarprófs en þeir eru mismunandi eftir brautum. Verslunarpróf er afhent við brautskráningu.
4.8. Á stúdentsprófi reiknast aðaleinkunn sem vegið meðaltal allra námsáfanga sem nemandi hefur staðist á viðkomandi námsbraut.
4.9. Nemendur eiga rétt á að fá útskýringar á mati sem liggur að baki lokaeinkunn í áfanga innan fimm virkra daga frá birtingu einkunnar. Prófsýning er haldin í desember og maí og er prófsýning tækifæri nemanda til að sjá prófúrlausn sína í viðurvist kennara. Vilji nemendur, sem ekki hafa náð lágmarkseinkunn, þá eigi una mati kennarans geta þeir snúið sér til skólastjóra og óskað eftir mati sérstaks prófdómara. Þá skal kveða til hlutlausan prófdómara sem metur prófúrlausnir. Úrskurður hans er endanlegur og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds.
4.10. Nemandi getur að hámarki verið skráður í 40 einingar á önn, samtals í dagskóla og fjarnámi.
4.11. Nemendur fylgja námsferli námsbrautar sinnar og geta ekki flýtt fyrir sér í námi með því að ljúka dagskólaáfanga í fjarnámi áður en kemur að honum á námsferli. Í þeim tilvikum þurfa nemendur að endurtaka áfangann með bekknum sínum.
4.12. Til þess að ljúka stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands þurfa nemendur að hafa lokið að lágmarki 100 einingum við skólann.
4.13. Skólastjóri getur veitt undanþágu frá einstökum reglum ef veigamiklar röksemdir eru fyrir hendi.