Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
5.1. Símar, snjallúr og snjalltæki eru stranglega bönnuð að prófborði. Að öðru leyti er tilgreint sérstaklega hvaða hjálpartæki nemendur mega hafa með sér. 5.2. Óheimilt er að taka yfirhafnir, töskur, poka eða pappír inn í prófstofur. Þó er heimilt að hafa meðferðis nesti. 5.3. Nemendum í prófi er ekki heimilt að yfirgefa prófstofu án þess að prófvörður sé til staðar að fylgja þeim. 5.4. Nemendum er skylt að vera um kyrrt í sætum sínum fyrstu 40 mínútur próftímans í lokaprófum. Önnur próf, hlutapróf, eru ýmist haldin í kennslustund í viðkomandi fagi eða í fyrstu kennslustund á þriðjudegi (þriðjudagspróf). Nemendum er skylt að vera um kyrrt í sætum sínum fyrstu 25 mínútur próftímans í slíkum prófum. 5.5. Kennari, í því fagi sem prófað er í, gengur á milli stofa og svarar spurningum nemenda. Kennarar koma einu sinni í hverja stofu. 5.6. Verði nemandi uppvís að alvarlegu misferli í prófi, skal kalla til skólastjórnanda sem tekur prófgögn nemandans í sína vörslu og vísar nemandanum úr prófi. Minniháttar brot nægir að tilkynna prófstjóra.