Algengar spurningar

Nánari útskýringar – Skólasókn

3.1. Mætingaskráning fer fram í upphafi kennslustundar. Nemendur sem ekki eru mættir við skráningu en mæta áður en 10 mínútur eru liðnar af kennslustund fá seint. Nemendur sem mæta eftir þann tíma, eða mæta ekki, fá fjarvist skráða.
3.2. Yfirlit yfir skólasókn er sent til nemenda og forráðamanna nemenda yngri en 18 ára á þriggja vikna fresti. Ef nemendur vilja gera athugasemdir við fjarvistaskráningu sína  verða þeir að koma athugasemdum til viðkomandi kennara innan 7 daga.  Breytingar eru ekki gerðar á viðveruskráningu að þeim tíma liðnum.
3.3. Nemandi sem hefur 95–100% mætingarhlutfall og yfir 90% raunmætingu eftir hverja önn vinnur sér inn einingu fyrir mætingu. Þessar einingar, sem að hámarki geta orðið sex, eru þá umfram þær einingar sem tilgreindar eru á hverri námsbraut.
3.4. Ef raunmæting nemanda í áfanga er undir 75%, á miðri önn eða síðar, verður nemandi skráður úr viðkomandi áfanga. Nemandi á kost á að taka áfangann í fjarnámi skólans á næstu önn.
3.5. Heimilt er að veita  undanþágu frá kröfum um raunmætingu vegna sérstakra aðstæðna eða veikinda. Beiðnir þess efnis þurfa að berast til skólastjóra áður en raunmæting fer undir 75%.
3.6. Ef nemandi er skráður veikur en er sannarlega ekki veikur breytir skólinn skráningu viðkomandi í fjarvist. Telst það  brot á skólareglum og áminning er veitt ef nemandi sinnir ekki fjarveruskráningu af heilindum.
3.7. Skólastjóri getur vikið nemendum úr skóla í lengri eða skemmri tíma virði þeir ekki reglur skólans um skólasókn.