Algengar spurningar

Nánari útskýringar – Tækja- og hugbúnaður

6.1.  Nemendur, sem eru að vinna verkefni vegna náms, hafa forgang í tölvur skólans.
6.2. Aðeins einn nemandi hefur heimild til að nýta hvert notandanafn. Óheimilt er að lána öðrum notandanafn sitt og óheimilt er að reyna að tengjast tölvubúnaði skólans með öðru notandanafni en því sem nemandi hefur fengið úthlutað.
6.3. Óheimilt er að nota aðgang að neti skólans til þess að reyna að komast ólöglega inn á net eða tölvur í eigu annarra og einnig er óheimilt að sækja, senda, geyma eða nota á neti skólans forrit sem hægt er að nota til innbrota eða annarra skemmdarverka.
6.4. Ef notandi skólanets hyggst nýta hugbúnað eða gögn í eigu annars eða annarra notenda þarf hann leyfi frá eiganda. Almennt er afritun hugbúnaðar og gagna í eigu annarra notenda óheimil. Um allan hugbúnað gilda ákvæði höfundarréttarlaga og því er meginreglan sú að óheimilt er að afrita hugbúnað nema það sé tekið fram í notendaleyfi.
6.5. Óheimilt er að villa á sér heimildir í samskiptum á Netinu, svo sem með því að koma fram undir fölsku nafni í tölvupósti. Óheimilt er að senda keðjubréf og annan ruslpóst. Óheimilt er að setja óþarfa forrit eða  gögn inn á gagnasvæði sem notendur hafa aðgang að.
6.6. Óheimilt er að reyna að breyta eða hafa áhrif á notkunarmöguleika annarra notenda. Óheimilt er að gera breytingar eða hafa áhrif á uppsetningar eða skjáborð tölvu, svo sem með því að fjarlægja eða breyta kerfisskrám, breyta bakgrunni, táknmyndum eða skjáhvíld sé það hægt.
6.7. Skólinn áskilur sér rétt til að meðhöndla gögn og notendaaðgang eftir því sem þurfa þykir svo sem að fara yfir, skoða og eyða efni á gagnasvæðum.