Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
7.1. Vellíðan er einn af lykilþáttum í öllu starfi skólans. Komi upp grunur um eineltis- eða ofbeldismál er fylgt áætlun Verzlunarskólans gegn einelti og ofbeldi sem birt er á heimasíðu skólans. 7.2. Skólinn er heilsueflandi framhaldsskóli og er notkun áfengis eða annarra vímuefna í húsakynnum skólans, viðburðum í nafni hans eða ferðalögum skipulögðum af skólanum bönnuð. Brot á þessari reglu getur leitt til brottvísunar úr skóla. 7.3. Stuðlað er að öryggi nemenda og er með öllu óheimilt að bera vopn í skólanum, hvort sem um er að ræða hnífa, skotvopn, rafbyssur eða önnur þau vopn er falla undir skilgreiningar vopnalaga nr. 16/1988. Öll mál hjá nemendum yngri en 18 ára sem upp koma í skólanum sem tengjast vopnaburði eru tilkynnt til barnaverndar.