Algengar spurningar

Nemendur sem sækja um inngöngu í skólann að loknu 1. námsári þurfa að hafa lokið eftirfarandi áföngum til að geta hafið nám á haustönn á 2 ári:

  1. Tveir áfangar í stærðfræði á 2 þrepi.
  2. Tveir áfangar í íslensku á 2 þrepi.
  3. Tveir áfangar í ensku á 2 þrepi.
  4. Tveir áfangar í þriðja tungumáli ef sótt er um á náttúrufræðibraut. Einn áfangi í þriðja tungumáli ef sótt er um á öðrum brautum.
  5. Einn áfangi í bókfærslu ef sótt er um á viðskiptabraut.

Auk þess eru áfangar sem tilgreindir eru í brautarkröfum á fyrsta námsári sem nemendur þurfa að ljúka í fjarnámi samhliða dagskóla.

Hægt er að kynna sér hvaða áfangar þetta eru með því að skoða yfirlitsmyndir námsbrauta. Þessir áfangar eru ekki undanfarar áfanga á öðru námsári.