Algengar spurningar

SAGA3MR05 – Fornaldarsaga (í boði fyrir alla)

Lýsing áfanga:

Í áfanganum fá nemendur innsýn inn í heim fornaldarinnar, vöggu vestræns lýðræðis. Nemendur kynnast sögufrægum persónum og atburðum. Hver var Arkimedes? Eða Sókrates, sem  aldrei skrifaði neitt en er samt ein þekktasta persóna sögunnar? Hvað var hann að jappa? Farið verður í fótspor Alexanders mikla sem hafði lagt undir sig stærstan hluta Asíu þegar hann var aðeins 30 ára. Hannibal og fílarnir sem fóru yfir Alpana og hver var Sesar sem sagði í lauslegri þýðingu: Og þú líka Brútus bróðir minn, og dó. Og Kleópatra? Var hún útsmoginn stjórnmálamaður sem hugsaði fyrst og fremst um sig? Af hverju hefur hún orðið fræg?  

Af hverju er Hermes guð Verslunarskólanema? Hvað voru hinir guðirnir alltaf að bauka á jörðinni? 

Við kynnumst alls kyns orðum sem eiga rætur að rekja til fornaldar og við notum í dag.  

 Markmið áfangans er að nemendur kynnist þessum sögufrægu persónum í gegnum skemmtilegar frumheimildir og kvikmyndir verða sýndar. 

Námsmat:

Áfanginn er símatsáfangi. Nemendur vinna nokkur stór verkefni, svo sem kynningar og lesa frumheimildir og horfa á kvikmyndir.