Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Áherslur áfangans eru tvíþættar. Annars vegar verður farið í grundvallar hugtök er snúa að kvikmyndafræði sem er þverfaglegt fag þar sem blandast fræði og listir. Farið verður yfir þau atriði sem gera okkur kleift að greina og njóta kvikmynda á dýpri máta. Hins vegar verður farið í sögu kvikmyndagerðar og horft á nokkrar af lykilmyndum kvikmyndasögunnar til þess að átta okkur á þeim nýjungum sem koma fram í tækni og frásagnarmáta á hverju skeiði. Farið verður í bíó ásamt því að horfa á kvikmyndir í kennslustundum og þær ræddar frá ýmsum sjónarhornum.
Áfanginn er símatsáfangi með fjölbreyttum verkefnum er snúa að greiningu kvikmynda.