Algengar spurningar

SAGA3HF05 – Saga helfararinnar (í boði fyrir alla)

Lýsing á áfanga:

Saga nasismans, gyðinga og útrýmingar á hendur þeim verður rakin í máli og myndum, einnig verður fjallað um stöðu ýmissa hópa í Þýskalandi nasismans og ofsóknir á hendur þeim. Sérstök áhersla er á útrýmingabúðirnar í Auschwitz og þau voðaverk sem þar voru framin og þá eru eftirmálum helfararinnar gerð skil. Lesnar verða valdar greinar um efnið ásamt því sem heimildamyndir og önnur miðlunarform verða notuð eftir fremsta megni.

Námsmat:

Áfanginn er símatsáfangi þar sem nemendur vinna ýmis verkefni yfir önnina. Ekkert lokapróf er í áfanganum.