Algengar spurningar

SÁLF2IN05 – Sálfræði I (í boði fyrir alla nema félagsvísinda- og alþjóðabr.)

Lýsing áfanga:

Áfanginn er grunnáfangi í sálfræði. Nemendur kynnast fræðigreininni sálfræði, eðli hennar, sögu og þróun. Helstu sálfræðistefnur, undirgreinar og starfssvið sálfræðinga verða skoðuð sem og hagnýtt gildi sálfræði í daglegu lífi. Farið verður í tegundir náms og minnis. Fjallað verður um geðheilsu og helstu geð- og persónuleikaraskanir skoðaðar. Þá verður farið í hvað tilfinningar eru, streituhugtakið og hvernig persónuleiki fólks mótast. Loks eru helstu rannsóknaraðferðir kynntar og nemendur framkvæma rannsókn. Kennslan er með fjölbreyttu sniði, fyrirlestrar kennara, umræður og verkefni.

Námsmat:

Símat.