Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Í áfanganum fá nemendur frekari innsýn í þroskasálfræði og félagssálfræði. Fjallað verður um þroskaferli barna og unglinga, eins og kynþroska, líkams- og hreyfiþroska, vitsmunaþroska, tilfinninga- og félagsþroska. Einnig verður fjallað um ýmis vandamál barna og unglinga eins og geð- og þroskaraskanir, námsvandamál, streitu og álag. Þá verður fjallað um félagslega hegðun og viðhorf fólks, hvernig við skynjum annað fólk, tengjumst því og höfum áhrif á það. Fjallað verður sérstaklega um fordóma, staðalmyndir, sjálfsmynd, viðhorf, fortölur, hópþrýsting og hóphegðun. Farið verður í þær leiðir sem fólk notar þegar það metur annað fólk, fyrstu kynni og náin sambönd. Einnig verður fjallað um hvaða lögmál sálfræðinnar eru að baki auglýsingasálfræði og hafa áhrif á auglýsingar. Að lokum verður farið í valin viðfangsefni í vinnusálfræði, afbrotasálfræði og íþróttasálfræði.
SÁLF2GR05.
Símat.