Algengar spurningar

Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs

Starfsfólki, óháð kyni, skal gert kleift að sinna tímabundinni fjölskylduábyrgð sem skapast af veikindum barna, maka eða foreldra. Ekki skal líta á það sem mismunun að tekið er tillit til kvenna vegna þungunar og barnsburðar.

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi
Starfsfólki Verzlunarskólans skal gert kleift að samræma fjölskyldulíf og vinnu, meðal annars með sveigjanlegum viðverutíma í skólanum. Skipulag stundatöflu skólans hefur að hluta gert þennan sveigjanleika mögulegan og mikilvægt er að svo verði áfram. Skólastjórnendur í samráði við viðkomandi starfsmann. Athugað í upphafi hverrar annar.
Tími til undirbúningsvinnu sé sveigjanlegur. Að ábyrgð á undirbúningsvinnu sé hjá kennurum, óháð stund og stað. Kennarar. Endurskoðað árlega.
Að starfsfólk þekki og nýti sér réttinn til fæðingarorlofs, - styrkja og leyfa vegna veikinda barna. Upplýsingar um réttindi starfsfólks séu aðgengilegar og skýrar. Skólastjórn og trúnaðarmenn. Athugað í upphafi skólaárs og kynnt nýjum starfsmönnum.