Algengar spurningar

SKAK2SN05 – Skák

Lýsing áfanga:

Skáklistin á sér veigamikinn sess í íslenskri menningu og má rekja þá sögu alla leið til þjóðveldisins á 10. öld. Í áfanganum læra nemendur um sögu skáklistarinnar almennt, undirstöðuatriði hennar og athyglisverðustu hliðar.
Áfanginn er ætlaður byrjendum jafnt sem lengra komnum en unnið er einstaklingsmiðað út frá getu hvers og eins.
Áhersla er lögð á raunhæf verkefni undir handleiðslu kennara en ekki síður þjálfun með taflmennsku innbyrðis í hópnum. Hluti áfangans fer fram í gegnum vefinn www.chess.com en þar er fjölbreytt umhverfi sem býður upp á ýmis konar þjálfun og keppnisform.
Vettvangsferðir verða farnar ef aðstæður leyfa, t.d. á Fischersetrið á Selfossi. Nemendum gefst einnig kostur að keppa fyrir hönd skólans í skákkeppni framhaldsskólanna og jafnvel etja kappi við þrautþjálfað stórlið kennara.

Námsmat:

Símat.