Algengar spurningar

Skólafulltrúi/móttaka

Skólafulltrúi starfar á skrifstofu skólans við almenn skrifstofustörf, s.s. móttöku, afgreiðslu og símsvörun, auk þess að veita almenna upplýsingagjöf. Skólafulltrúi vinnur með nemendum og starfsmönnum skólans með margvíslegum hætti og leitast við að greiða úr þeim málum sem upp koma hverju sinni.
Helstu verkefni eru m.a.

  • Umsjón með tölvupósti skólans,verslo@verslo.is.
  • Umsjón með útgáfu vottorða.
  • Halda utan um fjarvistarskráningar nemenda og starfsmanna.
  • Umsjón með upplýsingaskjám skólans.
  • Innkaup á skrifstofuvörum.
  • Umsjón með útgáfu prófskírteina til útskrifaðra nemenda.
  • Umsjón með útleigu nemendaskápa skólans.
  • Annast undirbúning- og frágangsvinnu við upphaf og lok hvers skólaárs.
  • Umsjón með fjölföldun prófa á prófatíma skólans.
  • Umsjón með ljósritunaraðstöðu skólans og ljósritunarvélum.
  • Umsjón með útleigu á íþróttasal.
  • Úrvinnsla ýmissa opinberra gagna.
  • Önnur tilfallandi verkefni á skrifstofu í samráði við skrifstofustjóra.