Algengar spurningar

Skólasóknareinkunn

Þegar líður á skólaönnina fara foreldrar og börn þeirra gjarnan að skoða skólasóknareinkunnina. Það getur verið villandi að horfa á mætinguna, t.d. eftir veikindi þegar skammt er liðið á önnina. Það sem helst villir fyrir að mætingarprósentan miðast við hlutfall af tímasókn. Nemandi sem verður veikur í heila viku getur misst af allt upp undir 30 tímum. Ef staða nemandans er skoðuð eftir 5 vikur í kennslu þá ætti tímasókn þess nemanda að vera um 100 tímar. Hlutfall mætingar væri á þeim tíma 85% (raunmæting 70%).

Við lok annar munu nemendur hafa mætt í rúmlega 300 tíma og þá verður þessi veikindavika rétt um 5% af mætingarhlutfalli nemandans. Nemandi sem er veikur í viku en mætir í alla aðra tíma endar því með 95% mætingu og 90% raunmætingu í lok annar og siglir mætingareiningunni örugglega í höfn.