Algengar spurningar

SPÆN2SV05 – Spjallað á spænsku (í boði fyrir alla)

Lýsing áfangans:

Áfanginn er kenndur í gegnum dægurmenningu hins spænskumælandi heims, eins og tónlist, kvikmyndir og spænska þætti. Mikil áhersla er á að vinna með talað mál til að nemendur öðlist færni í að tala og skilja tungumálið betur. Kennslan fer að miklu leyti fram í gegnum skapandi verkefnavinnu þar sem nemendur eru hvattir til að sýna sjálfstæði í náminu.   

Námsefni: Verkefni frá kennara, þættir, kvikmyndir og netið. 

Námsmat:

Áfanginn er símatsáfangi með engu lokaprófi. Lokaeinkunn byggist á munnlegum kynningum, verkefnum og vinnusemi í áfanganum.