Algengar spurningar

STÆR3BD05 – Stærðfræði (í boði fyrir viðskiptabr.)

Lýsing áfanga:

Efni áfangans er margþætt. Breiðbogaföll og þrepasannanir, tvinntölureikningur, lausnir annars stigs línulegra diffurjafna með rauntölustuðlum, fylkjareikningur og Taylor margliður. Hvern þátt má túlka sem kynningu þannig að nemendur „hafi séð” efnið þegar á næsta þrep kemur. Kennslan fer jöfnum höndum fram með fyrirlestrum kennara þar sem nýtt efni er kynnt og útskýrt og með vinnu nemenda. Gerðar eru kröfur um að nemendur vinni verkefni og standi skil á þeim annaðhvort í kennslustund eða með því að skila verkefnum skriflega.   

Námsmat:

Áfanginn er símatsáfangi og er mat byggt á verkefnum sem nemendur vinna í tímum, skyndiprófum og virkni í tímum.