Algengar spurningar

STÆR3HF05 – STÆRÐFRÆÐI (í boði fyrir félagsvísinda- og alþjóðab. og nýsköpunar- og listabraut)

Lýsing áfanga:

Efni áfangans er ákveðið og óákveðið heildi, notkun heildunnar og heildunaraðferðir. Einfaldar diffurjöfnur, diffurjöfnur með aðskilanlegum breytistærðum, línulegar diffurjöfnur á fyrsta stigi og sérlausn diffurjafna. Fylki og grunnatriði fylkjareiknings. Kennslan fer jöfnum höndum fram með fyrirlestrum kennara þar sem nýtt efni er kynnt og útskýrt og vinnu nemenda. Gerðar eru kröfur um að nemendur vinni verkefni heima og standi skil á þeim annað hvort í kennslustund eða með því að skila verkefnum skriflega. Nemendur þurfa ekki að geta sannað reglurnar.

Námsmat:

Áfanginn er lokaprófsáfangi með 70% lokaprófi, 20% hlutaprófum og 10% ástundun sem er byggð á verkefnum sem nemendur vinna og virkni í tímum.