Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Efni áfangans er rúmfræði í víðum skilningi sem skiptist í útdrátt úr sögu stærðfræðinnar, þrívíða hnitarúmfræði, kúluhornafræði og endanlega rúmfræði. Verulegan hluta efnisins kynna nemendur sér sjálfir en þar sem um fjölmargar setningar er að ræða og sannanir á þeim þá eru sannanirnar oft skýrðar nánar í fyrirlestrum. Fyrirlestrar (þó í litlum mæli), dæmatímar, hópvinna, nemendur kynna sér efnið sjálfir.
Byggir á verkefnum sem nemendur vinna í kennslutímum og heima, skyndiprófum og virkni í tímum. Í lok annar er munnlegt próf (ekkert skriflegt lokapróf).