Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Efni áfangans er margþætt en meginviðfangsefnið eru þrautalausnir meðal annars í rúmfræði, talnafræði og fléttufræði, þau svið stærðfræðinnar sem gjarnan birtast í stærðfræðikeppnum. Kennslan byggist á sjálfstæðri vinnu nemenda í litlum hópum en kennari kynnir helstu aðferðir hvers námsþáttar, einna helst með sýnidæmum. Gerðar eru kröfur um að nemendur nýti kennslustundir vel í sjálfstæðri vinnu og geti síðan kynnt einhverjar af lausnum sínum stuttlega fyrir samnemendum sínum. Einna helst verður notast við bókina The Art and Craft of Problem Solving eftir Paul Zeits, en nokkur eintök eru til á bókasafninu og ekki er ætlast til að nemendur kaupi hana.
Áfanginn er símatsáfangi og er mat meðal annars byggt á vinnu nemenda í tímum, kynningum á þrautalausnum og lausnaraðferðum auk verkefna sem unnin eru í tíma og heima. Það verða engin skrifleg próf. Ekki er gerð krafa á að nemendur taki þátt í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna.