Algengar spurningar

STJÖ2AL05 – Stjörnufræði (í boði fyrir alla)

Lýsing áfanga:

Efni áfangans er uppruni, þróun og endalok alheimsins, vetrarbrauta, stjarna, reikistjarna og lífs í alheimi. Ekki er reiknað með sérstakri þekkingu í raungreinum, en í námskeiðinu er farið nokkuð ítarlega og fræðilega í hlutina og ekki um gefins einingar að ræða. Námskeiðið hentar þeim sem vilja skilja alheiminn og hið kosmíska samhengi mannlegrar tilveru. Kennslubók er á íslensku.

Námsmat:

Ekki er lokapróf, en námsmat byggist á tímaprófum og ritgerð.
Farið verður í stjörnuskoðunarferð út fyrir borgina og stjörnuljósmyndun prófuð ef áhugi er á því.