Algengar spurningar

STJÓ2LJ05 – Stjórnmálafræði (í boði fyrir alla nema félagsvísinda- og alþjóðabr.)

Lýsing áfanga:

Áfanginn er inngangur að stjórnmálafræði sem fræðigrein en einkum verða þrjú meginhugtök notuð sem útgangspunktar. Lýðræði, jafnrétti og mannréttindi. Farið er ítarlega í hugmyndir og kenningar um lýðræði. Lýðræði á Íslandi og íslenska stjórnkerfið tekið sérstaklega fyrir. Jafnréttishugtakið skoðað frá mörgum sjónarhornum, t.d. út frá hugtökum á borð við kyn,  kynhneigð, kynþáttur o.fl. Unnið með mannréttindahugtakið í tenglsum við jafnrétti. Kennsluaðferðir eru í meginatriðum þrenns konar. Í fyrsta lagi eru fyrirlestrar kennara þar sem  námsefnið er reifað og hugtök útskýrð. Þá eru umræður og loks verkefnavinna nemenda; úr námsefninu sjálfu eða öðru sem því tengist. Nemendur kynna sér sjálfir ýmislegt efni sem tiltækt er á netinu og vinna verkefni, jafnt einstaklings- sem hópaverkefni. Gert er ráð fyrir að nemendur  sæki kennslustundir og taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu. 

Námsmat:

Símat sem byggir m.a. á verkefnum.