Algengar spurningar

Þegar ég reyni að tengjast netinu þá birtist „Your account has been locked out. Contact your system administrator …“ og ég get ekki tengst. Hvað er að?

Ef þú eða einhver annar reynir oftar en þrisvar sinnum að tengjast netinu með röngu lykilorði þá lokar kerfið sjálfkrafa á fleiri tilraunir en opnast aftur að 5 mínútum liðnum. Þetta er til að gera þeim erfiðara fyrir sem eru að reyna að brjótast inn á heimasvæði annarra.