Algengar spurningar

ÞJÓÐ2HK05 – Þjóðhagfræði (í boði fyrir alla nema viðskiptabr.- hagfræðil.)

Lýsing áfanga:

Áfanginn miðar að því að auka skilning nemandans á helstu kenningum hagfræðinnar og starfsemi 

þjóðarbúsins. Samband sparnaðar og fjárfestinga verður skoðað, hagvaxtarfræði kynnt og helstu 

kenningar er varða þróun hagkerfa.  

Áhersla er lögð á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins með því að tengja sem mest við 

þau efnahagsmál sem eru efst á baugi á Íslandi sem og erlendis. Áhersla er lögð á almennar 

þjóðhagsstærðir og að nemendur öðlist þá hæfni að leita sér upplýsinga um hagfræðilega tengd 

málefni. Kennslan er byggð á fyrirlestrum, verkefnavinnu og umræðutímum. Lesefni er að mestu á ensku og er lögð áhersla á að nemandinn geti skilið og tileinkað sér hugtök og efnisatriði á ensku sem og íslensku.  

Námsmat:

Áfanginn er símatsáfangi.