Algengar spurningar

Þróunarstjóri

Hlutverk þróunarstjóra er að hafa yfirumsjón með námi þeirra greina sem falla undir hann. Starfið felst í að stýra samstarfi kennara í þeim tilgangi að samræma kennslu og námsmat innan viðkomandi faggreina. Þróunarstjóri leiðir nýjungar í námi og kennslu í samstarfi við stjórnendur.  

Þróunarstjórar eru þrír og eru stjórnendur námsgreina með ábyrgð á mismunandi fagsviðum. Þróunarstjórar vinna saman að því að nám við Verzlunarskólann uppfylli kröfur um hagnýta og framsækna menntun með þarfir nemenda og kennara að leiðarljósi.  

Helstu verkefni þróunarstjóra eru m.a. 

  • Vinna að eflingu þverfaglegrar samvinnu milli einstakra námsgreina.
  • Umsjón með skipulagningu kennslu í viðkomandi greinum.
  • Fylgjast með dreifingu á vinnuálagi nemenda í viðkomandi greinum. 
  • Leiðbeina kennurum og samhæfa störf eins og við á m.a. að samræma námsmat.
  • Fylgist með nýjungum í kennsluháttum og tekur þátt í og stuðlar að þróunarstarfi í samráði við stjórnendur.
  • Vera tengiliður milli kennara sinna námsgreina/faga við stjórnendur skólans og utanaðkomandi aðila eins og við á.
  • Er stjórnendum til ráðgjafar varðandi mat á fyrra námi nemenda.
  • Þróun og viðhald námsbrautalýsinga í samráði við stjórnendur.
  • Kennsluskipting og töflugerð í samráði við stjórnendur og fagstjóra.
  • Er stjórnendum til ráðgjafar í ráðningarmálum í samvinnu við fagstjóra.
  • Er fagstjóra innan handar varðandi framboð á valgreinum.
  • Aðstoðar stjórnendur við yfirferð námsferla útskriftarnemenda.
  • Leggur fram tillögur að endurmenntun sem lýtur að viðkomandi námsgreinum.
  • Funda reglulega með  öðrum deildastjórum og stjórnendum og heldur fundagerðir.
  • Funda reglulega með fagstjórum og heldur fundagerðir.
  • Önnur verkefni í samráði við stjórnendur.