Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Nemendur fá undirstöðuþjálfun í forritun í forritunarmálinu Python. Nemendur læra að skrifa hefðbundin forrit sem keyra í textaham og eru oft með stærðfræðitengdum lausnum.
Einnig verður skoðað efni um tölvufræði s.s. sögu tölvutækninnar og forritunarmála, kíkt verður á efni um byggingu og helstu vélarhluta tölvunnar, minni og gögn, ásamt sambandi tölvunnar við umheiminn.
Kennsla mun byggjast á innlögn kennara og sjálfstæðri verkefnavinnu nemenda.
Áfanginn er mjög góður undirbúningur fyrir alla þá forritun og rökhugsun sem er mikilvægur hluti af mörgum tæknigreinum háskólanna s.s. verkfræði, stærðfræði, tölvunarfræði og fleiri tengdum greinum. Ef aðstæður leyfa verður skroppið í heimsókn í háskóla þar sem nemendur fá kynningu á námi í tölvunar-, verk- og tæknifræði.
Símat á önninni og verkefnaskil 100%.