Algengar spurningar

TÖLV3FG05 – Forritun II (Í boði fyrir náttúrufræðibr. og einnig þá sem völdu TÖLV2FO05 (Forritun I) )

Lýsing  áfanga:

Hér takast nemendur á við flóknari forrit en í grunnáfanga í forritun. Nemendur greina, hanna, og forrita forrit með hlutbundnum aðferðum. Vinnsluklasar og -föll eru notuð í uppbyggingu forrita. Farið verður dýpra í forrit þar sem lausnirnar krefjast texta- og fylkjavinnslu. Áhersla er lögð á vel skipulögð og vönduð vinnubrögð við mótun og framsetningu forrita. 

Áfanginn er mjög góður undirbúningur fyrir fyrir alla þá forritun og rökhugsun sem er mikilvægur hluti af mörgum tæknigreinum háskólanna s.s. verkfræði, stærðfræði, tölvunarfræði og fleiri tengdum greinum. 

Námsmat:

Símat á önninni og verkefnaskil 100%.