Algengar spurningar

UMHV2SL05 – Umhverfisfræði (í boði fyrir alla)

Lýsing áfanga:

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem sett voru fram í þágu mannkyns, Jarðarinnar og hagsældar eru þungamiðja áfangans. Sérstaklega verður litið til þeirra markmiða sem tengjast sjálfbærni og loftslagsbreytingum. Hvernig getum við stuðlað að betri heimi og hvernig getum við haft áhrif á samfélagið með því að vinna að þessum markmiðum.
Fjallað verður um náttúruauðlindir og nýtingu þeirra, sjálfbæra þróun og hvernig það hugtak snertir líf allra Jarðarbúa og helstu alþjóðasamþykktir á svið umhverfismála. Í því samhengi er samspil hagkerfa og vistkerfa Jarðarinnar til að þróa sjálfbær og skilvirk efnahagskerfi tekin til athugunar. Skoðuð verða í því skyni mismunandi fyrirtæki með hliðsjón af viðhorfum þeirra og framlagi til umhverfismála. Fjallað verður m.a. um samfélagsábyrgð, grænt bókhald, samgöngur, ferðamannaiðnað, neyslu og leiðir til sjálfbærni. Nemendur læra verkferla umhverfisstjórnunar sem verkefnið Skólar á grænni grein byggir á. Þeir beita sjálfir áhrifum sínum á aðgerðamiðaðan hátt í átt að aukinni sjálfbærni innan skólans og nærsamfélagsins með því að vinna að markmiðum Grænfánaverkefnisins jafnt og þétt yfir önnina.

Námsmat:

Símat, verkefni, hópvinna og vettvangsvinna.