Algengar spurningar

Umsjónarkennari

Umsjónarkennari er skipaður fyrir hvern bekk í upphafi annar. Hlutverk umsjónarkennara er margvíslegt og má þá helst nefna:

  • Taka á móti bekk sínum í upphafi annar.
  • Kynna nemendum heimasíðu skólans, þ.e. upplýsingar um skólann, námið, þá þjónustu sem er í boði og fjarnámið.
  • Kynna Innu fyrir nemendum og hvaða upplýsingar verða aðgengilegar þar.
  • Kynna nemendum í byrjun hvers skólaárs reglur skólans er snúa að:
    – Einkunnagjöf.
    – Námsmati, prófum og verkefnum.
    – Mætingarskyldu og mætingareinkunn.
    – Umgengni um skólann.
    – Aðgangi að bókasafni og tölvustofum skólans.
  • Fylgjast með mætingu og ástundun nemenda.
  • Hafa eftirlit með ástundun í námi sinna nemenda sem og félagslega þættinum.
  • Fylgjast með hvort nemandinn aðlagist félagslega eða sýni að sér frávik í hegðun.
  • Hafa samband við námsráðgjafa eða aðra ef þurfa þykir um tiltekin málefni.
  • Vera námsráðgjöfum eða skólastjórnendum innan handar ef upp koma mál er varða nemanda.
  • Vera talsmaður nemenda gagnvart öðrum kennurum og skólayfirvöldum.
  • Fylgjast með og leiðbeina nemendum um vinnubrögð í námi o.fl.
  • Sitja einn fund á ári með forráðamönnum ólögráða nemenda.
  • Aðstoða nemendur við námsval og/eða beina þeim til námsráðgjafa.