Algengar spurningar

Viðbragðsáætlun:

Ef grunur er um að eitthvað af ofangreindu eigi sér stað skal þolandi eða sá sem fær vitneskju um málið hafa samband við umsjónarkennara, námsráðgjafa eða stjórnendur skólans. Viðbragðsteymi kannar allar ábendingar til hlítar.

Hægt er að koma ábendingum á framfæri með því að hitta ofangreinda aðila á skólatíma, hafa samband símleiðis eða senda tölvupóst. Einnig er hægt að koma upplýsingum á framfæri með því að fara inn á svæði á heimasíðu skólans, Tilkynning um einelti, ofbeldi, kynferðislega áreitni eða kynbundið ofbeldi. Unnið er með ábendingar í trúnaði sé þess óskað.
Upplýsinga er aflað með viðtölum við aðila málsins, þolendur, gerendur og forráðamenn nemenda undir 18 ára aldri. Komi upp ábendingar á meðal starfsfólks skólans, komi stjórnendur, trúnaðarmenn eða aðrir upplýsingum til viðeigandi aðila. Afla þarf upplýsinga og skrá niður. Viðbragðsteymi greinir úrræði og vinnur að lausn samkvæmt eftirfarandi atriðum:

  • Upplýsinga aflað.
  • Samband haft við viðeigandi aðila og forráðamenn ef aðilar eru yngri en 18 ára.
  • Unnið að lausn – viðtöl við viðeigandi aðila.
  • Viðbragðsteymi vinnur saman að viðtölum.
  • Upplýsinga aflað frá kennurum ef einelti, kynbundið áreiti, kynbundið ofbeldi eða annarskonar ofbeldi á sér stað í bekk.
  • Stuðningur og vinna með viðkomandi aðila.
  • Ef málið leysist ekki er utanaðkomandi sérfræðiaðstoð fengin.