Algengar spurningar

Viðburðir á vegum NFVÍ sem foreldrar geta sótt

Á hverju hausti setur listafélag NFVÍ upp leikrit sem sýnt er í Bláa sal, hátiðarsal skólans. Þá er einnig á haustönn Vælið, söngvakeppni skólans. Í febrúar er frumsýnd sýning nemendamótsnefndar sem sett er upp af nemendum skólans. Foreldrar og aðrir gestir hafa tök á að kaupa miða á þessa viðburði.