Áreiðanleiki heimilda, heimildaleit og ritstuldur

Þegar nemendur hafa valið sér viðfangsefni eða fengið í hendurnar viðfangsefni til að skrifa um hefst leit að áreiðanlegum og góðum heimildum.

Nemendur hafa úr mörgu að velja þegar leita á að heimildum, til að mynda geta þeir hafið heimildaleitina á Leitir.is og séð þar hvað er að finna á bókasöfnum, leitað í erlendum gagnasöfnum og að lokum leitað á netinu. Nemendur þurfa þó að hafa í huga áreiðanleika heimilda og á það sérstaklega við um heimildir sem teknar eru af netinu.
Hér að neðan eru að finna upplýsingar um áreiðanleika heimilda, heimildaleit og að lokum ritstuld.

Áreiðanleiki heimilda

Áreiðanleiki tímaritsgreina

 

Ritrýndar tímaritsgreinar (Peer reviewed) eru á meðal áreiðanlegustu heimilda. Þegar leitað er í rafrænum gagnasöfnum er oftast hægt að velja um að leita eftir ritrýndum tímaritsgreinum með því að smella á þann möguleika. Sjá dæmi á mynd úr gagnasafninu ProQuest: