BÓKF1BR05

Bókfærsla og rekstrarhagfræði

Grunnáfangi. Sjá nánar um hæfniviðmið í skólanámskrá VÍ. Námsmat kann að vera öðruvísi í fjarnámi og dagskóla.

Áfanginn er byggður upp sem kennsla í bókhaldi, rekstrarhagfræði og áætlanagerð. Í bókfærsluhlutanum er fjallað um grundvallaratriði bókhalds, algengustu reikningar kenndir og flokkun þeirra í eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Farið er í dagbókarfærslur og uppgjör (reikningsjöfnuður). Kennsla í gerð einfalds efnahags- og rekstrarreiknings og uppsetning á reikningsjöfnuði með einföldum athugasemdum.
Í rekstrarhagfræðihlutanum er farið yfir grunnatriði og grunnhugtök í rekstrarhagfræði. Nemendum er gerð grein fyrir tekjum, afkomu og mismunandi tegundum kostnaðar. Farið verður í útreikninga á núllpunkti og nemendum kennd einföld áætlanagerð.

Grunnhugtök bókfærslu, debet, kredit, eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Bókhaldshringrás, bókhaldsreikningar, efnahags- og rekstrarreikningur, millifærslur, athugasemdir, álagning, afskriftir og vextir. Áætlanagerð, kostnaðarhugtök, myndræn túlkun á kostnaði, tekjur, núllpunktur og myndræn framsetning á núllpunkti.

Verkefnaskil yfir önnina: 20%
Lokapróf: 80%

  • Bókfærsla. Bókin er á pdf formi í kennslukerfinu.
  • Inngangur að rekstrarhagfræði og áætlanagerð. Bókin er á pdf formi í kennslukerfinu.