Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Lokaprófin fara fram í húsnæði Verzlunarskóla Íslands.
Þeir sem ekki geta tekið prófin sín í húsnæði Verzlunarskólans, þurfa að tilkynna það með því að senda tölvupóst á netfangið fjarnam@verslo.is. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á því að finna stað til að taka prófið og finna ábyrgðarmann til að sjá um prófið. Nemendur bera sjálfir kostnað af því að taka próf annars staðar.
Úti á landi hafa framhaldsskólar og grunnskólar séð um prófin fyrir okkur. Erlendis hafa starfsmenn sendiráða og ræðismannaskrifstofa séð um próf, einnig er hægt að taka próf í skólastofnun eða á öðrum viðurkenndum stað í næsta nágrenni við bústað nemanda.
Sjúkra- og árekstraprófsdagur er síðasti dagur í próftöflunni. Öllum er heimilt að flytja hvaða próf sem þeir vilja á þann dag og er óþarfi að framvísa læknisvottorði til þess. Tilkynna þarf um færlsu á prófi í síðasta lagi daginn sem prófið á að vera.
Þeir sem lenda í því að fá tvö próf sama dag geta annað hvort: