23.02.2026 3-A í námsferð til Brussel Vikuna 8.-12. febrúar fóru nemendur í 3-A á félagsvísinda- og alþjóðabraut í námsferð til Brussel, ásamt tveimur kennurum. Ferðin er hluti af lokaáfanga á brautinni og tilgangurinn að kynna sér starfsemi nokkurra alþjóðastofnana í borginni. Fyrst var ferðinni heitið í heimsóknarmiðstöð Evrópusambandsins, Parlamentarium, þar sem saga og starfsemi ESB var viðfangsefnið. Þá voru höfuðstöðvar NATO heimsóttar og fengu nemendur kynningu á bandalaginu og hittu Íslendinga sem þar starfa. Mjög áhugaverð heimsókn. Hópurinn heimsótti svo skrifstofu EFTA og fékk fræðslu um hlutverk þess. Íslenski sendiherrann í Brussel tók svo á móti hópnum í íslenska sendiráðinu og þar fengu nemendur einnig fræðslu um starfsemi sendiráðsins og margt annað sem tengist utanríkisþjónustunni. Síðasta daginn var svo borgin Bruges heimsótt, en þar fengu nemendur frjálsan tíma og nutu þessarar gömlu miðaldaborgar. Mjög skemmtileg og gagnleg ferð í alla staði.