24.03.2026 Auka opið hús Auka opið hús verður mánudaginn 13. apríl klukkan 14:00. Boðið verður upp á klukkutíma heimsókn í skólann þar sem nám skólans og félagslíf verður kynnt og boðið verður upp á Verzlólestina sem fer um skólann. Þá verður hægt að ná tali af starfsmönnum skólans og kynna sér sérstaklega einstaka námslínur. Smelltu hér til að skrá þig á auka opið hús Við hlökkum til að taka á móti nemendum úr 10. bekk. Forráðamenn eru velkomnir með á kynninguna.