Berlínarferð

Dagana 7. -11. apríl sl. héldu 29 nemendur á öðru ári í þýsku, ásamt tveimur kennurum, í ferð til Berlínar. Markmið ferðarinnar var að kynnast sögu og menningarlífi Berlínar ásamt því að spreyta sig í þýskunni í daglegu lífi.

Dagskráin var þéttskipuð og byrjaði á gönguferð í gyðingahverfinu í nágrenni gistiheimilisins Generator, Berlín Mitte, sem dvalið var á í ferðinni. Síðan lá leiðin í Hackescher Markt sem er líflegt torg og vinsælt verslunar – og skemmtanasvæði í hverfinu. En svæðið er þekkt fyrir fallegar hönnunarverslanir, fjölbreytta veitingastaði, bari og kaffihús.

Næsta morgun var svo stefnan tekin á hinn fræga sjónvarpsturn (Fernsehturm), hæstu byggingu Þýskalands, sem gnæfir yfir borgina og er staðsettur á Alexanderplatz. Þar sá hópurinn sögu Berlínar frá miðöldum og fram til dagsins í dag með svokölluð sýndarveruleikagleraugu, ásamt því að fara með lyftu uppí turninn þar sem horft var yfir alla borgina með stórfenglegu útsýni yfir öll helstu kennileiti Berlínar. Eftir gott hádegisverðarhlé var gengið í geggjuðu veðri að þinghúsinu (Reichstag) og í gegnum Brandenburgarhliðið, einni þekktustu byggingu Berlínar og tákn friðar og sameiningar við fall Berlínarmúrsins árið 1989.

Á þriðja degi var svo haldið í leiðsagnartúr um Berlínarmúrinn með Berlínunum. En það eru frábærir íslenskir leiðsögumenn sem bjóða uppá margar skemmtilegar göngu- eða hjólaferðir um hin ýmsu kennileiti Berlínar. Eftir þennan frábæra túr dreifðist hópurinn í smærri einingar í gagnaöflun og hópastarf sem var partur af námsmati annarinnar. Um kvöldið var svo sameiginlegur kvöldverður á indverskum veitingastað.

Síðasta daginn fengu nemendur að velja sér einhvern áhugaverðan stað til að skoða áður en haldið var í STASI fangelsið. Þessi heimsókn í fangelsið var allt í senn mjög áhrifamikil, yfirþyrmandi en nauðsynleg til að skilja betur sögu Austur- Þýskalands, sérstaklega í ljósi þess, að leiðsögumenn okkar í fangelsinu voru fyrrum fangar sem deildu með okkur persónulegri reynslu sinni. Flestir voru sammála um að þetta hafi verið einn af hápunktum ferðarinnar sem var ótrúlega skemmtileg og lærdómsrík og veitti nemendum góða innsýn í sögu og menningu Berlínar, ásamt því að efla tungumálaáhuga nemenda. Hópurinn var einstaklega fróðleiksfús og áhugasamur og algjörlega til fyrirmyndar í allri ferðinni.

Með í för voru Ásdís Björk þýskukennari og Martin Kollmar, kennari í stærðfræði og efnafræði.

Aðrar fréttir