29.01.2026 Bjarni Snæbjörnsson deildi sögu sinni með nemendum Bjarni Snæbjörnsson heimsótti nýverið nemendur á þriðja ári og fjallaði um líf sitt út frá bók sinni Mennska. Heimsóknin var hluti af verkefni þar sem nemendur hafa verið að lesa brot úr ýmsum ævisögum, þar á meðal bók Bjarna. Bjarni mætti nemendum af mikilli einlægni og opnaði á persónulega reynslu sína. Hann las upp úr bókinni, sagði frá lífsleið sinni og deildi bæði áskorunum og sigrum. Auk þess flutti hann nokkur lög úr söngleik sínum Góðan daginn, faggi, sem setti sterkan svip á heimsóknina. Frásögn Bjarna vakti athygli og áhuga nemenda og gaf þeim tækifæri til að velta fyrir sér sjálfsmynd, hugrekki og mennsku. Við þökkum Bjarna kærlega fyrir komuna og fyrir að deila sögu sinni á svo opinskáan og áhrifaríkan hátt.